Hrein eign samtryggingardeildar, séreignardeildar og tilgreindrar séreignar Birtu lífeyrissjóðs var samtals 567.303 milljónir króna í árslok 2022. Hrein nafnávöxtun eignasafnsins var neikvæð um 1,5% á árinu sem samsvarar 9,9% neikvæðri raunávöxtun.
Hrein eign samtryggingardeildar Birtu var 545.270 milljónir króna í árslok 2022. Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildarinnar var neikvæð um 1,5% á árinu sem samsvarar neikvæðri 9,9% raunávöxtun
Myndin sýnir þróun á eignum samtryggingardeildar á árinu 2022. Í upphafi árs stóðu eignir í 549.755 milljónum króna. Þá námu iðgjaldagreiðslur á árinu 20.028 milljónum króna. Á móti var greiddur lífeyrir að fjárhæð 16.318 milljónir króna. Nettóinnflæði til deildarinnar nam því 3.710 milljónum króna á árinu. Þá voru hreinar fjárfestingartekjur yfir þetta tímabil neikvæðar um 7.407 milljónir króna og rekstrarkostnaður 789 milljónir króna. Í árslok 2022 stóð hrein eign deildarinnar í 545.270 milljónum króna og lækkaði því á milli ára um 4.485 milljónir króna eða um 0,8%.
Taflan sýnir nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar á árinu 2022
Raunávöxtun |
-3,5% |
-0,9% |
-1,8% |
0,3% |
0,2% |
-22,1% |
-19,4% |
6,3% |
Taflan sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu og fjárhæðir þeirra, annars vegar í árslok 2022 og hins vegar í árslok 2021
Í árslok 2022 | Í árslok 2021 | |||
Í milljónum kr. | ||||
13.578 | ||||
86.145 | ||||
17.202 | ||||
7.851 | ||||
93.482 | ||||
31.619 | ||||
85.344 | ||||
170.627 | ||||
41.516 | ||||
201.430 |
Hrein eign séreignardeildar var 19.482 milljónir króna í árslok 2022 og hækkaði um 4.995 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 797 milljónum króna á árinu 2022.
Sjóðurinn býður upp á þrjár mismunandi sparnaðarleiðir í séreignardeild og tilgreindri séreign. Þær eru innlánsleið, skuldabréfaleið og blönduð leið. Í blönduðu leiðinni eru bæði skuldabréf og hlutabréf á meðan eignir skuldabréfaleiðarinnar eru nánast eingöngu skuldabréf auk lítils hluta innlána. Þá eru eignir innlánsleiðarinnar, eins og nafnið gefur til kynna, einungis innlán.
Frá ársbyrjun 2022 hafa sjóðfélagar Birtu í tilgreindri séreign geta valið á milli þessara sömu þriggja sparnaðarleiða og séreignadeildin hefur boðið upp á. Fyrir þann tíma var einungis ein sparnaðarleið í boði fyrir tilgreindu séreignina.
Nafn- og raunávöxtun leiðanna á árinu 2022 ásamt 5 og 10 ára meðaltali hreinnar raunávöxtunar má sjá hér fyrir neðan.
Tilgreind séreign er sérstök tegund séreignarsparnaðar.
Sjóðfélagar geta valið að ráðstafa allt að 3,5% skylduiðgjaldsins í séreignarsjóð. Innistæða í tilgreindri séreign er eign þess sem leggur hana fyrir og um hana gilda sömu reglur og um hefðbundna séreign hvað íslensk erfðalög varðar, þ.e. tilgreind séreign erfist við fráfall.
Hrein eign tilgreindrar séreignardeildar var 2.551 milljón króna í árslok 2022 og jókst um 233 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 79,8 milljónum króna á árinu 2022.
Á árunum 2018-2021 var eingöngu ein sparnaðarleið í boði í tilgreindu séreigninni og er ávöxtunin því sú sama á því tímabili í 5 ára meðaltalsútreikningnum. Ávöxtun ársins 2022 tekur hins vegar mið af því hvaða sparnaðarleið var valin í ársbyrjun 2022, sbr. myndin hér á eftir.